Orð þín
eru spjótsoddar
stingandi nálar
brennandi glóð

og þú
fleygir
vopnum þínum
í mig

hverju
á fætur
öðru

skilur mig
eftir
eins og
sært dýr

á ískaldri
jörð

og allt,
sem máli
skiptir
er það
sem frostið
hvíslaði
í snjóinn