þetta er svona ljóð/rapplag=)


Til hvers borgum við skatta, fyrir ríkisskratta
þeir hugsa ekki um fjölskyldur með tvo krakka
bara sitt feita rassgat, vini vandamenn og ættingja
komið og heimsækið mig, ég er viss um að þið gætuð ekki mætt hingað
steríótýpur sem þið reynið að skapa i ykkur og í kringum ykkar gjörðir
Davíð Oddsson leiðir ykkar hjörðir
Sjálfstæðis menn eignuðu sér hagstæðar heimsaðstæður
og breyttu ekki vísitölunni, sem hefði lækkað bankainnistæður
í stað þess biðu þeir og unnu kosningarnar, allt fyrir atvkæði
íslensk fratfræði, þetta kveikir í einhverju sem kallast Hatræði…
Þeir nýttu sér atvinnuleysi á austurlandi með virkjunnarmálum
og heilaþvoðu þjóðina í frétta annálum, þeir voru á ís hálum
Austfirðingar sáu hyllingar, atvinna fyrir alla sem vildu
núna væri virkjun, ekki bara skipin sem silgdu
Allir fengju tækifæri til að sjá fyrir sínum,
en hver á að borga, á ég að borga þeim laun úr vasa mínum
Dýrar áætlannir, náttúru skemmdir, allt mældi á móti
þá snéru þeir þjóðarumræðunni í mál sem kallast kvóti
kúguðu lítið félag svo að stórlaxarnir myndu ekki tapa
en þetta sjálfstæðisveldi mun brátt fara að hrapa
því þjóðin er löngu orðin sjálfstæð, þetta er úrelt fyrirbæri
eins og friður 2000, 2000 er að líða, verður þá ekkert annað friðar tækifæri?
Af hverju hækkar bensín stöðugt? vegna þess að þjóðin kaus í blindni
fjögur ár í viðbót undir kúgun davíðs, sagði ég og hló ekki, þetta er ekki fyndni
alvarlegt mál, kúgun ekkert annað, hægrisinnaðar stjórnmála kenningar
eiga ekki við mig, og mínar persónu hremmingar….
er þetta davíð gegn golíat, er þetta einn á móti öllum
er þetta kjarri á móti konum og köllum?….

Armur ríkisins teygir sig
grípur þig og beygir þig
Aldrei ríkisarmurinn hneygir sig
kjósum þá ekki, sjálft það segir sig
Kjósum af viti, ekki af auglýsinga striti
kjósum sjálf, ekki hugsa um hvar aðrir bleki driti
og setji kross við, hugsum fyrst, svo fræmkvæmum
Þið vitið að við sáum því sem við uppskerum…
Uppskerum það sem við sáum, sáum
En við höfum sáð fræjum fáum

Einstæðar mæður, fjölskyldu fólk hvað kjósið þið?
Sjálfstæðis menn þið heilaþvoðið, fólkið er bara ljósritið
af því sem þið sköpuðuð: blindir kjósendur sem við plötum
alla sem við hötum og þá sem klæðast í víðum fötum
Ég er kannski ungur en ég sé í gegnum ykkur, lygalaupar
Reynið að vinna mig niður til þrautar, en ég geri buxur ykkar blautar
Með sannleika, Davíð hefði ekki manndóm standa andspænis mér
Maður gegn manni, auga fyrir augu, það sem ég sé þú sérð
Ég og Davíð í Slag, ég hugsa um þjóðina, alla sem eiga erfitt með að lifa
Davíð hugsar um vini og vandamenn, og rolexx úrið sem er hætt að tifa
Hugsiði fólk, HUGSIÐI í stundarkorn
Viljiði annað kjörtímabil þar sem stjórnanháttun er forn
Þar sem Niðurstöður stinga eins og horn
Með ákveðinn aðilla sem hagar sér eins og norn
Frekar vill ég Sverri Björnsson, þrátt fyir hans afskipti
Af flokknum sem predíkar sjálfstæði, en öxlum ég ypti
Hvar er hinn Agressívi Demókrataflokkur sem ég bíð eftir
Samfylkingin verður að styrkjast, það eru mínar Fréttir

Armur ríkisins teygir sig
grípur þig og beygir þig
Aldrei ríkisarmurinn hneygir sig
kjósum þá ekki, sjálft það segir sig
Kjósum af viti, ekki af auglýsinga striti
kjósum sjálf, ekki hugsa um hvar aðrir bleki driti
og setji kross við, hugsum fyrst, svo fræmkvæmum
Þið vitið að við sáum því sem við uppskerum…
Uppskerum það sem við sáum, sáum
En við höfum sáð fræjum fáum