dagur 897
hef ég nú fundið fyrir mjög aukinni heimsku
finn ég hvernig taugarnar smám saman fara
stærðfræðiþrautirnar sem áður ég leysti
styrkjast svo nú get ég þær ekki ráðið…

dagur 2.376
nú hef ég fengið það fullkomlega staðfest
funinn í helvíti og Drottinn eru ekki til
hér hef ég dvalið á eilífðarinnar biðstofu
en hugsa nú dapur að biðin mun lengjast…

dagur 9.567
vita vinirnir að afmæli mitt er í dag?
villtur á sinninu syng ég minn söng
þeir gætu nú komið og grafið mig upp
gera það ekki því þeir hafa gleymt…

dagur 63.982
nú hlæ ég sem geðsjúki maðurinn glaður
gaurarnir uppi hafa ábyggilega drepist
því eru það mín örlög að hýsast hér lengur
hugsa um það sem ég hef hugsað áður…

dagur 492.631
krummiiiii svaf í klettagjááááá!!!
kaldriiiii vetrarnóttu ááááá!!!
það eina sem ég man úr þessu kvæði
pirrandi að vita ekki meira en það…

dagur 5.362.974.122
nú hefur dregið til tíðinda hérna
heyri ég skvaldur í fyrsta sinni
kannski eru menn að grafa mig upp
með tárin í tóttum gleðst ég happí…

dagur 5.362.974.123
guð hvað ég hlakka til að sjá heiminn aftur
hefur gæfan mín snúist mér viljug í vil?
bara að ég gæti við þá mennina spjallað
en tal þeirra dugar til að hugga mín eyru…

dagur 5.362.974.124
kannski ég hafi eitthvað misskilið mjög
mennirnir voru ekki að grafa eftir mér
því í raun væri það frekar ólíklegt núna
þessi hiti gæti brætt alla muni í vökva…

sólin hafði stækkað og brætt af mér mold
með trega ég sætti mig við orðið hlutskipti
nú finn ég mig fuðra upp í hitanum allur
fyndið hvað kaldhæðnin gerir mér grátt…

fimm milljarðir ára sem ég dvaldi hér niðri
á þessum tíma hef ég hugsað og pælt
hvernig það væri að sjá þjóð mína aftur
því gæti ég grátið – ef ætti mín tár…

af moldu var ég kominn og í moldu fór á ný
úr moldu kom ég aftur en bráðnaði svo hlýr…


-pardus-
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.