Vegna þess
hve sjálfstraust mitt er brothætt
sit ég í horni
og grúfi mig
inn í mína eigin skel.
Vegna þess
að ég mun aldrei geta sagt þér
hversu vænt mér þykir um þig
er skel mín full
af útsprungnum blómum
sem eru mér ýmynd þín
og ég safna saman í stóran vönd
og legg við náttborðið þitt
hverja nótt
er þú sefur.