Orð mín allslaus
eins og tómt blað
er fýkur ósjálfbjarga með vindinum
eins og bitlaust sverð
sem ónotað ryðgar
og orð mín óséð ryðga
og hverfa
í gleymskunnar vindi.
—–