Lyftum glösum
fögnum, skál!
Nýr drengur
er borinn í heiminn.

Lyftum glösum
fögnum, skál!
Í hnapphelduna
er maður genginn.

Lyftum glösum
fögnum, skál
Nú merkismaður
er borinn til grafar.