SVARTAMOLD

Hjartað sekkur í svarta mold
Sést aldrei aftur og ég er einn
Sársaukinn hrýfur ekki á hold
Hjálparlaus, hér er ekki neinn

Tómur að innan ég tæti upp jörð
Tímanum eyði í að finna þig
Hjartalaus skal ég halda um þig vörð
Þar til ég endurheimta þig

Grafið ég hef svo gleymist stund
Get ekki munað hversu lengi
Hættur að trúa á hjartans lund
Hæfist að deyja í jarðarþrengi

Gefst ég nú upp í þessari gröf
Glatað að eilífu hjarta mitt er
Engist nú um í minni uppgjöf
Eltist við það sem var aldrei hjá mé