Hef oft pælt í því
Hvernig stendur á því að ég krassa,dett niður,öðru hverju
Gerði það sem ég gat til að plægja götuna fyrir friði
Sagði réttu hlutina,gerði það rétta
Fuck,skúraði meira að segja fyrir hana
En samt virðist einsog hún stuði mig,öðru hverju
Hætti við að halda áfram,gef henni skít í skóginn
Hefni mín með svip um að þvo þvottinn
Skil eftir ís,uppþornaðan ís svo hún skilji

Biðraðir gera mig stressaðan útaf hnakkapoti

Microchip í tönn sem tekur allt samtalið upp
Tala oft við spegilinn,skíri málið fyrir þeim

En samt skil ég ekki hvernig stendur á því að ég fæ það ekki
Gott þegar hún skilur það að mig langar í fótabað
Mig langar í gott nudd,betri bíl,nýja dósaupptakarann
Nei, ekki getur hún skilið mig,fundið með mér

Nú ligg ég á þunnri dýnu,með pissublett og túrblóð
Sé fyrir mér hugan sveima í rigningu,því ég held það mun rigna
Svartur Limmó,svartar dragtir,svartir smókingar,glær tár
Ashes to ashes,dust to dust
það er fjölmennt,þarna eru skólafélagar,gleymndir kunningjar
Heyri óljóst en sé hvernig þeir spjalla um mig, hæla mér
Mér hlínar um rætur,það eru svo margir sem elska mig
Æi,djöfuls útvarp,aftur hér,verð að vera hér núna
Kanski það síðasta sem ég geri er að kíkja á hana,
vera hún,ást hennar,hlíja hennar
Oh,bara ef hún myndi skilja mig
The Greatest trick the devil ever pulled,