Augu okkar mætast.
Mín full af sorg
en þín af sigri.
Bros þitt sker sál mína
ég brosi ekki lengur.
Það er sama hvað ég segi
mér er skipað að elska þig.
Þú, sem sviptir mig sakleysinu.