MERKISLÍF

Líf mitt virðist svo innantómt
Tilgangslaust og áhrifalaust
Fólk segir að ég kunni ekki að lifa
Það kann ekki að lifa eins og ég

Hvað veit það um lífið
Sem ég ekki veit?
Hvað veit ég um lífið
Sem það ekki veit?

Líf mitt er yfirfullt
Ég lifi meðal drauga
Ég hef áhrif á alla í kringum mig
Bjarga mannsálum daglega.

Sem er meira en sumir geta sagt.