Endurkoma Scott Bakula Hann var horfinn,
mínum sýnum,
ótal árin.
Burtu farinn
sjónum mínum,
koma tárin.

En nú aftur,
hann er kominn,
(ei Drakúla).
Opnast kjaftur
aldrei taminn
Scott Bakula.

Stendur nú í stafni,
stýrir dýru skipi
Enterprise það nefnist,
sómir vel atarna,
Bakula er Kapteinn,
uppreisn æru fengið.