breiðir út vængi sína
svört nótt

döpur ský
svífa yfir
dimmbláu vatni

hvítir, gleymdir dagar
heimsækja hug minn

og þegar slökkt er á
síðustu ljósunum

flýgur nóttin
yfir vatnið