Mynd

Á silfruðum stálvængjum
svífur hvítt kvöldað
opnum gluggum.

Og sólin sendir þúsund geisla
sem brotna á þríhyrningsfjalli nessins.
Í gráum og grænum mosa neista
glaðlega smáir dropar regnsins.

Ég tek fram filmu’ og vél
framkalla ljóð á mynd er sól sest.

En í vetur,
þegar þjóta stormar og vetraél,
þá er vorsins dýrð að eilífu fest
á litla en litríka mynd.
Leynast þar fjallið
og þú.