Hræðsla.

Að ávarpa hana er eitthvað
sem hugurinn minn segir að
sé rétt að gera, en tilfinningin
segir mér að hörfa frá.

Það kemur æ oftar upp í huga minn
að það sé ekkert að hræðast,
en eitthvað er það sem hræðir mig
ég er brenndur á brjósti.

Hjarta mitt er sem eitt stórt sár,
það er enn opið.
Opið fyrir sýkingu en einnig
fyrir lækningu.