Auðmýktin kostar aukreitis
ef stígur þú fæti um borð
í herjólfsferð til helvítis
er heldur brátt frá storð.

Siglum við um sjávarslóð
er sýður sundur bein
Satan skortir aldrei glóð
á sinn steikingartein
—–