Í DAG…

Í dag mun ég sigra heiminn
Brytja hann í sundur
Og leyfa möðkunum að nærast á honum

Í dag mun ég sigra heiminn
Hneppa hann í ánauð
Og selja hann á þrælamarkaði alheimsvæðingar

Í dag mun ég sigra heiminn
Brenna hann til kaldra kola
Og byggja sandkastala úr öskunni