Rafmagnað andrúmsloft
og frosin orð,
föst á tungubroddi.
Ósögð orð særa mest.
“Fyrirgefðu” getur haft
ótrúleg áhrif.
Bræðin lekur
úr huga manns
og verður að nánast engu.
Orðin þiðna
og varir, sem áður
voru herptar, bærast að nýju.