Út um skjáinn glampa ljósin
og lýsa mér leiðina móðir.

Í herberginu þínu situr fjöldskylda þín
fjöldskyldan sem ég aldrei sá.

Börnin leika saman leiki
leiki, sem ég aldrei lék.

Mamma syngur það yngsta í svefn
söng, sem ég aldrei heyrði.

Barnið sofnar við vanga þinn
vanga, sem ég aldrei snerti.

Í köldum gustinum hími ég
barnið, sem þú aldrei vildir.