Það er DROPI á gólfinu.
Er það dropi úr lífslindinni
sem flæðir óhindruð að eilífu?
Er þetta dropi af dreira mínum
sem flæðir um æðar mér
og heldur í mér lífinu?
Kannski er þetta tár sem var grátið
af gleði yfir nýju lífi.
Nei.
Það pissaði einhver útfyrir.