Við tjörnina: brabra og börn,
brauðmolar, sól og hiti.
Söngfuglar á flögri,
fallegt að mínu viti.

Og sólin vermir vangann
og vonin læðist inn,
en styttur af fornum feðrum
fela skugga minn.

En sólin er farin að sofa
og söngur fuglanna deyr.
Laufin fimlega falla
og finnast aldrei meir.
It’s not only the car your driving, It’s also the size of the arm hanging out of the window