* Listaverk ljóssins *

Bak við fjöllin birtist ljós.
Það dreifir úr sér
og glæðir dalinn.
Sendir geisla á botn vatnsins,
sendir geisla inn í híbýli mannsins
og vekur hanann með hlýjum strokum.

En brátt sígur ljósið á ný.
Það svæfir allt með léttum strokum,
ástúðlegum og hlýjum strokum.
Þakkar fyrir góðan dag,
málar listaverk á himininn
og kveður með ljúfum kossi.