Hún var fullkomin
velkomin
og alkomin
inn í líf mitt.

Ég var altekinn
heltekinn
og handtekinn
af henni.

Hann var kvensamur
óhamingjusamur
og afbrýðisamur
eiginmaður.

Ég var kappsfullur
áhyggjufullur
og blindfullur
fyrir utan gluggann hennar.

Hún er ástrík
skilningsrík
og moldrík
sem betur fer.

Hann varð allslaus
vonlaus
og getulaus
án hennar.