Einmanaleikinn
hvílir á
dimmbláu hafi

með í för
er
fley sársaukans

sem sekkur
og stímir
niður á við

í kafnandi
ópum
hversdagsleikans