til Abigel. Frá systur til systur


Elsku engillinn minn
Ég sakna þín svo mikið
Þú veist ekki hve mikils virði þú ert mér
og hvað ég elska þig út af lífinu

Það er svo margt sem við höfum gengið í gegnum og þurft að takast á við
Manstu þegar við vorum litlar ?
Manstu þegar við slógumst og hvað okkur lenti oft saman en oftast sættumst við þó
Ég held þú hafir stundum átt erfitt með að þola mig
En svo áttuðum við okkur á því seinna meir
hve mikils virði við vorum hver annarri
Og í raun hve miklar vinkonur við vorum

Ég stend í svo mikilli þakkarskuld við þig
Án þín veit ég ekki hvar ég væri stödd
Ég væri ekki sú sem ég er í dag nema vegna þín
þú hefur reynst mér svo vel
Ég hef ávallt getað leitað til þín
og ég veit að ég mun alltaf getað stólað á þig

Ég vil að þú vitir að ég hef og mun alltaf elska þig
Þú ert oft hjá mér í huganum,
hver sem ég er,
og hvað sem ég geri.


Það er sama hvað það er sem þarf að takast á við
hvort sem er gleði eða sorg
Ég mun alltaf vera til staðar til að gleðjast með þér
og tilbúin til að styðja við bakið á þér

Þú getur alltaf leitað til mín
að nóttu sem degi
Ég mun ávallt vera til staðar fyrir þig
Þú ert mér allt

Ég elska þig út af lífinu

Ástarkveðja
Þín systir callas
ék vet að ek gei savsetnyngavilur!!! neni eki ad fava