Leyfðu mér að synda
í hafsjó ástar þinnar.
Láttu mig aldrei finna sker,
leyf mér að drukkna.

Fylltu hjarta mitt
af marglitum fiðrildum sumarsins.
Láttu mig vita að ást okkar sé svo sterk
að ekkert geti brotið hana niður.

Því ég þarf að vita
að ást okkar sé
einhvers virði
í einskismannslandi.