Rauður himininn eins og blóðið hafi runnið svo lengi svo lengi og við heyrum ekki öskrin úr helvíti en vitum að þau eru þarna - sjáum ángistina í blóðrauðum himninum sem reynir að segja okkur söguna af sálunum sem féllu en við viljum ekkert heyra viljum ekkert sjá - fitjum bara upp á nefið og hröðum okkur áfram eftir endalausum hraðbrautum lífs okkar. Hraðbrautum lífs sem við lifum á sekúndubroti og deyjum svo til að verða eitt með þessum blóðrauða himni. Þessum blóðrauða himni sem þykir svo fallegur svo fallegur. Þessi blóðrauði kvöldhiminn sem elskendur horfa á haldandi í hendur hvors annars eins og morgundagurinn verði aldrei og þessi blóðrauði himinn sé það eina sem sé. Horfa saman á þessar blóðrauðu sálir endurspeglast í himninum.

Öskrin heyrast ekki þegar hinn blóðrauði himinn breitist í svartblátt haf sem endurspeglar ekkert. Endurspeglar ekki neitt.
-Sithy-