Núna eru næturnar langar

Dagarnir eru langir og leiðir -
ég lít útum gluggann á hafið.
Nú verða næturnar langar.

Tungan meðtekur ekki mál hugans –
bara mælir eitthvað útí lofið.
Ég er fangi í herbúðum hugans.

Þú komst og orð þín voru undarleg
og allt sem þú sagðir þráði ég.
Óttinn varð afstæður.

En svo kom sólin og sagði mér
sögu af lífinu og dauðanum.
Og ég fór að efast um orð þín.

Dapur svanur á dimmbláu vatni
dvelur í hjarta mér og grætur.
En sorgin er afl til að sigra.

Hollis
It’s not only the car your driving, It’s also the size of the arm hanging out of the window