Kýrin Kusa
gerði einsog hún kaus
hjá Kusu
eru kisur
sem eru með kossaflens.
Fæðan var mjög óeðlileg hjá Kusu
því að hún kaus
að éta kex
hún kunni ekki að segja mu heldur bara eks
og telja upp að 6
seinna var hún kosin
sem bæjarforseti, þá varð til einn konsert
sem kisa
bjó til í Kusuvegi 6.


Lára lyftarakelling
sá um að hafa allt í lagi líka lyftarann
hún borðaði bara lifur
og þess vegna var hún svona sterk og gat gert við lyftur
og líka náttúrulega lyftara
hún lára var lofthrædd
þess vegna fór hún aldrei í flugvél til London hún lafði
bara heima og gerði við lyftarann
og lofaði
að gera við lyftuna
í blokkinni sinni í Laufagötu (555)
og enn hún lifir
sem loftfimleikakona
í Laufastræti (5).
(i)Ragna OG Dagný(i)