Augnablik
milli ljós og skugga
augu hans glitra í myrkrinu
eins og glirnur í ketti
og ég er hrædd
ó svo hrædd.

Augnablik
horfir hann á mig
eins og til að leggja á minnið
allt sem hann sér
svo breytist ásjóna hans
snögglega og hratt.

Augnablik
í dögun
kattslíkar hreyfingarnar
heilla mig og tæla
ég er hans
hann er minn
ó en sú armæða.

Augnablik
næturhimininn svo tær
stjörnurnar segja söguna
um álögin sem á okkur voru sett
hann köttur að nóttu
ég dúfa að degi
ó en sú mæða.

Augnablik
í ljósaskiptunum
horfi ég í augu hans
aðeins í augnablik
við snertumst og sjáum
að ég er að eilífu hans
og hann er að eilífu minn
alltaf saman
og þó aldrei.
-Sithy-