Sestu hérna hjá mér,
Systir mín góð.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlál og hjóð.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát af því
að mamma ætlar að reyna að sofna
rökkrinu í.
Mamma ætlar að sofna.
Mamma er svo þreytt.
Og sumir eiga sorgir
sem svefninn getur eytt.
Sumir eiga sorgir
og sumir eiga þrá
sem aðeins í draumheimum
uppfyllast má.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð.
Mamma ætlar að sofna,
systir min góð.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
