enn á ný
sit hér einn
horfi í loftið
og hugsa
um allt sem hefði getað orðið

hefði ég bara sagt eitthvað annað
hefði ég ekki þurft….
hefði ég …….

En ég stend upp
og ég veit
að allt sem áður var
er nú horfið

Vegna þess að ég sagði eitthvað rangt
vegna þess að ég….
vegna þess.. að ég er ég