ÚTUNDAN

Stig í pottinn er glepjast þú lætur
og dansa þá djöflar dátt um nætur.
Leggja á ráðin - vef mikinn,
á endanum stendurðu ein - svikin.

Hatrið það vex og öfundin magnast,
þú gerir þitt besta - allir hagnast.
Sjálfsálit minnkar og verður að engu,
en á endanum þeir góss sitt fengu.

Þýðir eitthvað að bíða og vona,
að þetta verði ekki alltaf svona?
Samvizkan vakni er örlögin mætast,
og að á endanum muni allir draumar rætast!