Elskan
við skulum kaupa heiminn fyrir þig
og skreyta hann gulli og gimsteinum.
Við skulum láta rauðan dregil
vera ætíð við fætur þér.
Við skulum kaupa allt sælgæti í heiminum
og gera úr því höll þar sem þú ríkir.

En ekki í dag
Mamma og pabbi eru upptekin.