Draumur
eins og draumur um nóttu
komstu eins og ljós í myrkri
eins og plástur á sár
og ég dansa í dögginni
dansa í myrkrinu
þarf ekkert ljós
þarf enga næringu
rifin upp með rótum
og nú dansa ég og dansa
meðal drísildjöfla og fallinna meyja
og ég flýt um
flýt um í geymi gnægtar og alsælu
draumur
um þig
sem komst til mín
um nóttu


[Vil svo bara benda á málverk eftir Ralph Fabri í þessum link http://www.library.georgetown.edu/dept/speccoll/fabri/intro.htm
vert að kíkja á ef þið þekkið ekki til hans]
-Sithy-