Vorið sem Dauðinn kyssti

Mjöllin hylur nakinn og stirðnaðan líkama þinn.
Frostið myndar rósir í starandi augu þín.
Fönnin myndar fjólur á stjarfar varir þínar.
Snjórinn myndar liljur í stingandi hár þitt.
Ísinn kveikir eld í blæðandi brjósti þínu.

Þú ert vorið sem Dauðinn kyssti.