Úti í horni
kúrir hrædd vera
með tárvot augu
skjálfandi líkama
óbærilega sorg
orðlausar varir
og fær aldrei frið

Máninn skín
í augu hennar
og úr augum
hennar skín
hvers vegna?
En enginn svarar
og stóru augun lokast
en þó glóir tár á kinn