SUMAR-93

Þetta er sumarið 93.
Sumarið er við hengum niðrá torgi með hanakampa
Drekkandi mentolspritt sem að við keiptum í gamla apotekinu
þar niður frá.

Þetta sumar var líf okkar ekki raunverulegt
og við hámuðum í okkur Artan og aðrar kúlur
eins og okkur væri borgað fyrir það.
Veruleikinn varð af skrítnum draumi
og við vildum ekki vakna.

Þetta sumar horfðum við á riddara götunar
líða hjá
eins og hermenn eftir orustu.
Þetta sumar þráðum við að verða eins og þeir.
Verða ósigrandi hermenn götunar líka.

Þetta var sumarið er við vorum ung og óreind
líf okkar krakkana var örugt, bein leið í átt að pillum.
Þetta sumar föðmuðum við að okkur nóttina
og liðum útaf í faðmi Dauðans
Þetta var sumarið 1993..