stundum líður mér
eins og lítilli
steinvölu
sem hefur oltið
frá risastóru fjalli

þá langar mig svo
að geta flogið
aftur í litla
skarðið mitt
í fjallshlíðinni
en þá uppgötva ég
að ég hef enga vængi
og sit föst.