Þið
eruð ekki eins og við.
Við erum ævintýrabækur,
eða rómantískar ástarsögur.
Þar sem fólk segir hvað því finnst
og hvernig því líður.
Þið
eruð ekki eins og við.
Þið eruð dulúðugar spennubækur
eða flóknar ævisögur.
Þar sem aðrir verða að komast til botns
í ykkur.
Þið
eruð ekki eins og við
Sögurnar okkar eru auðlesnar
rétt og rangt skilgreint í byrjun.
Ekkert er skrifað á milli línanna
heldur er allt eins og það er í raun og veru
Þið
eruð ekki eins og við.
Sögurnar ykkar eru margflóknar
fullar af flækjum og skúmaskotum.
Á milli línanna stendur svo margt
sem er erfitt að skilja.