Frostrósin fríða
friðar góðan garð.
Kristallast í snjónum,
krýnt er þúfubarð.

Þakin snjó
þúfan er.
Rósin mjó
af öllum rósum ber.

Tígulleg er hennar tign,
tómlegt væri án fannar.
Tjörnin frosin,er svo lygn,
það traustur vetur sannar.