Ungbörnin gapa af undrun miklri
þegar við útskýrum fyrir þeim heiminn allan

útskýrum án miskunnar hvernig dýrin deyja
í nafni sonar, friðar og sláturfélags suðurlands,
njótum að uppýsa hvernig þau í heiminn komu
þreytumst seint á að glotta lúmskt með,
skerum barnslega sálina til blóðs með hvössum orðum
í stað þess að bæta útitekna kápuna og sauma,
afleiðingar orðaskipta dagins og andleg gremja
brýst út í grimmdar glotti og höggum þungum

og þeir fáu hlutir sem við ekki getum útskýrt
bendum við óörugg í blindni á biblíu svarta
“True words are never spoken”