Hlýjan sem þú gafst mér
hún yljaði mér

Gleðin sem þú færðir mér
hún kætti mig

Ástin sem þú barst til mín
hún er hér enn

innst inni,
við dýpstu hjartarætur

þar ert þú enn

þar er ástin þín enn

þar minnist ég þín
og á þig enn

Allt sem þú gafst mér
glöðum höndum

á ég enn
á góðum stað í hjarta mér

Þótt þú sért farinn
og komir aldrei meir

ég man þig og aldrei gleymi
að þú ert ástin mín


…og lifir í hjarta mér.


umsalin