Því þessi veggur?
Hví hleypirðu mér ekki inn?
Ertu hræddur um neitun?
Eða samþykki?
ég skil sársaukann,
sársaukann sem fylgir lífinu.
Því er ég hunsuð?
Hunsuð af þér?
manneskjunni sem ég elska?
og þú sagðist elska mig líka.
Segðu mér það.
hvað er að mér.
ég get breytt mér.
Breytt mér að þinni vild.
Við eigum það eitt sameiginlegt,
það að þjást,
og finnast við vera ein.
Vertu ekki einn, einn.
Vertu einn saman með mér.

Stony. 2002