Zoloft er gott:

Zoloft er gott
Vítamín fyrir sál
Þaggar í hungrinu
Fyllir í skarðið
Sem hefur blætt frá byrjun
Bælir niður litlar raddir
Sem heimta hefnd og blóð
Blóð til að bæta upp skaðann
Eftir öll þessi ár.

Zoloft er gott
Vítamín fyrir sál
Bætir upp einveru
Ég er aldrei einn með mér
Ég þarf ekki ást
Vinir eru óþarfi
Samfélagið er óþarfi
Ég er alltaf glaður
Alltaf-alltaf-alltaf!

Zoloft er gott
Vítamín fyrir sál
Allt getur reddast
Ég hlæ að fíflum
Sem hóta heiminum
Með kjarnorkusprengjum
Höfum engar áhyggjur
Heimurinn skiptir engu
Framtíðinni má henda