Tilbúinn er blýantur og blað
þruma römmum rímunum á það
hugsa vel prófa hitt og þetta
reyna huga minn hálfan að metta.

Sjálfsagt ég reyni að malla saman
orðunum breyta, gæti verið gaman
blanda saman stíl og staf
skeyta við og sníða af.

Tilraunamennskan stundum tekst
á snilldar rímur stundum rekst
ræði mig varla við af kæti
birti hér og safn mitt bæti.
—–