Tréið teygir grein,
á móti tunglsins brú,
trésins tákn ég ein
og tunglið það ert þú.

Þakklát er ég þegar nóttin þokast inn
því þú ert það sem þekur himininn.

Lauf mín leika við
lýsingu frá þér.
Eftir óra bið,
ertu hér hjá mér.

Stjörnur standa hér
og styðja okkar ást.
Þeim þakklát erum vér,
því sköpun okkar brást.

Dapurleikinn dafnar er dagur dansar inn
því dagurinn hann deyfir drauminn minn.