einhver doði
í manni…

sest á hnausinn,
kladdann
kúgaður kyrrsetumaðurinn
kornungur
með klessu í kjólnum sínum…

ó hvað ég er ljót
og subbuleg

einhver doði líka…

stend upp af stabbanum
stybban að slátra mér
steingeldum stráknum
stinnum og sjúklega sætum
standpínan
seighert á söltum skaufanum

ó þvílíkur helvítis haunk!

en ennþá einhver doði í manni…

líka þér





stýmir strimils