Til er hungur sem nístir útgrátin börn
ekki í sjónvarpi eða leikið af frægum
langt frá þýddum rauters blaðagreinum

neyðin sást síðast útí bónus í dag
klædd í léleg klæði með rispað plastkort
barnsmóðir þriggja áskrifenda fátæktar

við kassann neyddist að skila vörum
fólkið leit undan með ísilögð andlit
ég var einn af þessu fólki
“True words are never spoken”