NÚTÍMA FRANKENSTEINSKRÍMSLI

Samsettur úr ýmsum mönnum
Án eigin heila og hugsana
Stjórnað af öðrum og ætlaðst til þess
Að hann hlýði í einu og öllu

Ofinn og samhæfður
Til að falla inn í samfélag
Hrakinn burt, álytinn skrímsli
Fyrir annarra hugmyndir

Lifðu!
Alveg eins og Frankenstein
Lifðu!
Alveg eins og Frankenstein

Þú ert bara misheppnuð læknistilraun
Það verður að slökkva á þér
Samfélag vill ekki skilja þig
Þú getur aldrei þrifist á meðal vor

Ég mun ávallt elska þig, sonur kær
En þú ert ógurlegt viðrini
Það er þér fyrir bestu að við slökkvum á þér
Þú verður að hlusta á mig

Lifðu!
Alveg eins og Frankenstein
Lifðu!
Alveg eins og Frankenstein

Samsettur af öðrum manneskjum
Án eigin hugsana
Hann hlustaði ávallt og gerði sem sér var sagt
Hrakinn burt fyrir annarra hugmyndir

Nei! Þú mátt þetta alls ekki!
Hann vill ekki hlýða mér!
Stöðvið skrímslið undir eins!
Hugmyndir þeirra eyðilögðu hann

Lifðu!
Alveg eins og Frankenstein
Lifðu!
Alveg eins og Frankenstein