ÍMYNDAÐ SAMVISKUBIT

Í dag er eitthvað að
Ég veit bara ekki hvað.
Mig klæjar í hryggjarliðina.
Einhvers ég saknaði
Um leið og ég vaknaði.
Hvað getur það nú verið?

Að fljóta um í óvissu
Að hafa þessa skyssu
Á ímyndaðri samvisku.
Hverju hef ég nú gleymt?
Hvað hefði ég betur geimt?
Ég mun varla hvílast í kvöld.

Hverju sé ég eftir?
Hvaða áhyggja mig eltir?
Af hverju fæ ég engan frið?
Ég veit ekki hvað það er
Sem ég hef gert af mér
En samt finn ég fyrir eftirsjá.